Ég vaknaði upp af nákvæmlega átta tíma svefni í morgun við raust í útvarpinu sem tilkynnti mér það að fólk sem svæfi átta tíma eða lengur á hverri nóttu myndi frekar deyja en skammsvæfara fólk. Þetta var nokkurn veginn nóg til að rífa mig samstundis upp úr rúminu, bölva téðu rúmi og snúa mér í hring. Atjú.
eftirþanki og spé: Í ofangreindu bloggi eru þrjár setningar, afmarkaðar með púnkti og animónu. Úr hinni fyrstu setningu bloggsins má ráða að fólk sem sefur minna en átta tíma á nóttu væri líklegt til að deyja ekki, en það er að sjálfsögðu misskilningur. Engu að síður hef ég ákveðið að þar sem þetta blogg heitir The Oven Of Truth, sé allt sem þar standi skrifað óhagganlegur sannleikur. Þar af leiðandi mun ég láta af hvers kyns svefni héðan í frá, til að auka líkur á ódauðleika mínum. En fyrst maður er nú orðinn ódauðlegur, þá þykir mér nokkuð ómerkilegt að eyða orðum í þetta tölvudrasl og er farinn út að safna sprekum í brennu, sem ég mun persónulega standa í miðjunni á og fara með gamanmál. Ég er að hugsa um titilinn "Ég var einu sinni dauðlegur".
eftirþanki og pé: Ef ég væri vídeólistamaður myndi ég stilla upp myndavél á kvennaklósetti þar sem miðaldra konur sjænuðu sig. Verkið myndi kallast "The Sjæning". Hugsanlega myndi Ingvar Þórðarson leika axaratriðið.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home