fimmtudagur, febrúar 14

Undarlegasta mál. Það var einhver sem hringdi í FÍH í gær og vildi fá nafn á æðsta manni innan nemendafélags FÍH. Skrifstofan gaf nafnið mitt upp og síðan kom ég upp í skóla og var spurður hvor einhvur stúlka hefði hringt í mig þann morguninn. Svo var eigi. Ojaja, hugsaði ég og horfði í gaupnir mér og smellti í góm. Síðan fékk ég sms áðan sem stóð í: "Sendi ykkur póst í gær, vinsamlegast svarið schtrax. Kveðja, Fjóla BÍSN". Og svo bara tékkaði minn á póstinum sínum og hreinlega kemst að því að það er fundur hjá BÍSN á laugardaginn og það er bara búið að skipa minn í Hagsmunanefnd BÍSN. Dæmi: Leikskólamál, Skólagjaldamál, hækkun á skólabókum, lesblinda nemenda og fleira og fleira. Allt eins og blómstrið eina. Bara kominn í háskólapólitíkina án þess að spurja kóng eða prest. Lyfta litlafingri. Minna má nú sjá. Aseisei... Þetta er megaskrýtið...sérstaklega þar sem ég er ekki einu sinni opinber fulltrúi nemendafélagsins, sem þar að auki er hálfdormandi þennan veturinn og sér sér einungis fært að halda bjórkvöld og þvíumlíkt. Bónusspurning: Hvað eru mörg lík í þvíumlíkt?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home