mánudagur, ágúst 15

Og svo vil ég þakka öllum fyrir mætingu og yndislega skemmtun í brúðkaupinu okkar Tóta, og fyrir frábærar gjafir. Við elskum ykkur!
Tilfinningarnar eru að bera mig ofurliði. Ekki aðeins það að giftast, hitta vini og fjölskyldu og vera að fara að aðskiljast, heldur er ég að uppgötva Beethoven eftir öll þessi ár. Þetta mun vera mikill tilfinningalegur seinþroski, flestir tengja við Tunglskinssónötuna þegar þeir eru 12 ára, en ég fyrst í gær. Ég held ég sé að breytast í manneskju. Píanóið flýtur í tárum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home