asnastrik dagsins
Ég fór í búdina ádan til ad fá eldunarinspirasjón. Ég var nýbúin í píanótíma og eitthvad svo hátt uppi ad ég bara keypti allt sem ég sá. Tildaemis ákvad ég ad vid thyrftum ad eiga lager af nidursodnum tómötum og kókosmjólk og keypti nokkrar dósir. Svo keypti ég 3kíló af tómötum, 3kíló af lauk, 2kíló af gulrótum, 4kíló af eplum, bananaknippi, risastóran ananas, 10 egg, tvo kjúklinga, ólífur og kapers, ólífuolíu og lítraflösku af hvítvíni, helling af mozzarella og jógúrt, 4 súkkíní, brokkolí, salat, salt, steinselju í potti, kíló af sítrónum og ábyggilega eitthvad fleira. Svo borgadi ég fyrir thetta og radadi öllu fallega í nokkra poka ofaní körfunni. En thegar ég aetladi ad labba heimáleid, sem er svolítill spotti(plús hundradogeitthvad tröppur thegar heim er komid), gat ég ekki einusinni lyft pokunum uppúr innkaupakerrunni. Thad hvarfladi ad mér ad taka leigubíl en ég var búin ad eyda svo miklum peningum ad ég tímdi thví ekki. Ekki stodadi ad hringja í Tóta thví einsog thad hafi ekki verid nógu hraedilegt ad vera veikur á afmaelisdaginn hefur líkamshiti hans nú stigid uppí 4 kommur. Thannig ad ég ákvad ad keyra innkaupakerrunni heim og skila henni í kvöld thegar enginn saei til. Ég var örugglega klukkutíma á leidinni. Karfan lét mjög illa ad stjórn og rann alltaf í allar áttir nema áfram, sérstaklega thví hér er ekki til gata sem er ekki brekka. Til ad halda körfunni beinni thurfti ég ad labba fáránlega haegt, fólk hefur örugglega haldid ad thetta vaeri einhver gjörningur. Sídan gleymdi ég ad gera rád fyrir risakrók sem ég thurfti ad fara útaf tröppum sem voru á leidinni og lötradi thví gódan rúnt um borgina med hnefana kreppta um körfuna ad reyna ad drösla henni upp og nidur af gangstéttabrúnum í svitabadi thví úti er 25 stiga hiti og logn. Hraedilegt. Ég aetla bara ad skila henni á morgum. Munid thid eftir krökkum sem sögdu morgum? En hvad á ég ad elda? Thessi ferd med körfuna drap alla andagift.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home