allir krakkar
Já. Ég var á tónleikum með hressu strákunum í Supersilent í nýja flotta Bimhuisinu áðan. Skyggni ágætt. Þeir þræða einhverja rosalega fína línu á milli osts og ástar. Fýlu og fílings. Þessir Norðmenn. Supersilent er svona hljómsveit með tveimur hljómborðsfikturum, trommara og trompetleikara og þeir impróvisera alla sína tónlist á staðnum. Ég á stundum í vandræðum með de norske sánd, sérstaklega þegar þeir tapa sér í fjúsjonlegum syntalínum eða træbal algleymi, en það er samt eins og manni renni blóðið til skyldunnar að líka vel við disse gutte. Þetta var tilraun til uppbyggilegrar tónlistarumfjöllunar á glögginu. Fylgist með í næsta þætti, en þá verður fjallað um frumraun Megasar sem slagverksleikara í nútímaslagverksflokknum Courgette Modernus á Jazz-folka-o bluesfestivalen í Færeyjum árið 1996, sem dró feitan dilk á eftir sér, eins og allir vita sem eitthvað hafa fylgst með ferli belgísku popprokksveitarinnar K's Choice (eftir að Vriets Heinmans hætti og Jaap Benkhuisinga tók við bassahlutverkinu).

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home