Kóresk stúlka sem ég kannast lítilsháttar vid var med tónleika í gaer. Hitti hana í gaermorgun og sagdist myndu koma ad hlusta á hana, en um kvöldid var ég ad aefa mig og gekk eitthvad svo vel ad ég ákvad ad fara ekki. Thegar ég var búin ad aefa mig fór ég fyrir utan tónleikana til ad hitta vinkonu mína sem fór ad hlusta, aetladi ad fá hana med mér á barinn ad horfa á fótboltann.
Fólkid streymdi út úr tónleikasalnum, thar á medal kóreska stelpan og ég óskadi henni vandraedalega til hamingju med tónleikana. Ég var nú ekkert ad segja henni ad ég hefdi ekki komid, fannst thad svosem ekkert mikid mál. Allavega. Nú kemur rosalega ríkmannlegur madur advífandi og tilkynnir ad hann vilji endilega bjóda okkur vinkonum hennar Tee Yun á restaurant ad thiggja mat og drykk. Thetta var thá studningsmadur hennar, forríkur hjartaskurdlaeknir med rosafína perlukonu med sér. Til ad saera hann og Tee Yun ekki ákvad ég ad koma med. Allir veitingastadir í nágrenninu voru fullir af fótbolta thannig ad hann krafdist thess ad bjóda okkur heim til sín thar sem vid gaetum bordad og drukkid, spilad á píanó eda farid í sundlaugina hans sem vaeri med öldufítus. Vid slógum til og keyrdum í brjáludum Bens í rosalega villu umkringda kirsuberjatrjám og rósum. Af svölunum sá madur yfir alla borgina og hann sagdi okkur ad hann aetti líka húsid vid hlidina thar sem dóttir hans byggi. Svo var opnad kampavín og eldadur dýrindismatur og var kvöldid yndislegt í alla stadi, stúlkurnar spiludu á fílabeinsbösendorferinn og hjartaskurdlaeknirinn fraeddi okkur á thví ad ef allar aedar líkamans yrdu bundnar aftaní hverja adra myndi thad naestum ná til tunglsins. Ad lokum keyrdi hann okkur allar heim(á ödrum bens)og vid töludum um hvad thetta hefdi nú verid dásamlegt kvöld. Ég var naestsídust í rödinni og thegar ég steig útúr bílnum thakkadi ég kaerlega fyrir mig og kvaddi. Thá kalladi Tee Yun á eftir mér: ,,Og Gudrún, thakka thér kaerlega fyrir ad koma ad hlusta á mig á tónleikunum, thad gladdi mig einstaklega mikid og var mér mjög mikils virdi!"

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home