Afsakið. Ég virðist hafa verið fjórtán ára þegar ég skrifaði inn síðustu færslu. Þar steig ég niður í vitlausa gjótu, ellegar tíma-"warp"-svæði, sem gjörði mér kleift að grípa niður í hugarástand mitt miðsumars árið 1994. Þessi leiði misskilningur hefur nú verið leiðréttur og eru allir þeir er telja sig hafa orðið fyrir sálrænu tjóni af þessum sökum beðnir afsökunar, aukinheldur sem þeim býðst ókeypis ný-afþýdd kransakaka úr fermingarveislu minni frá árinu 1994. Og miða á fullveldishátíðarballið á Tunglinu.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home