fimmtudagur, apríl 18

Mozart var meistari stefsins. Svo fullkomin eru mótíf hans að erfitt er að ímynda sér að einhver hafi samið þau. Líklegast þykir manni að Almáttugur hafi skapað þau í sinni mynd, rétt eins og manninn og konuna! Það er erfitt að ímynda sér þau einhvern veginn öðruvísi, m.a.s. herra Mozart gat það stundum ekki, og þá var hægara sagt en gert að búa til úrvinnslukafla úr þeim. Þá brá hann á það ráð að nota einfaldlega nýtt stef í úrvinnslukaflann. Það gerir hann hér.

...stutt brot úr tímamótatónbókmenntaritgerðregtiratnnemkóbnótatómamít sem ég er að gera

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home