mánudagur, september 17

Hló og hlæ hlæ allir saman! Blessadur Bragi B., Eiríkur, Benni og allir hinir sem láta eitthvað frá sér á þennan miðil. Ég hef það bara fínt. Nú eru Vignir frændi minn og vinur hans, Örlygur, komnir en mikið stefnulaust stuð ríkir hér á bæ. Frá skólanum er það að frétta að ég er í stærðfræði. Við erum að deilda, reikna botn og topppunkta, beygjupunkta og svo að reikna út hvenær föll eru fráhverf og samhverf e.t.c. Semsagt allt það sem er gott að vita ef maður vill finna út jaðargróða eða tap fyrirtækja eða þjóða. Ég fíla mig svoldið eins og ég sé í STÆ 603 sem er bara besta mál. Kennarinn minn er síðhærður með þykk svört gleraugu, alltaf að segja "Fan" og "jävla skit" (Honum finnst Deildun "skit kul" eins og hann orðaði það sjálfur) og lítur út fyrir að vera mikill Metallica aðdáandi. jæja svona er nú það. Ég er að fara til Berlínar í lok mánaðarins með pabba sem að fara að hlaupa Marathon. Er einhver annar að fara til Berlínar? Að hlaupa Marathon? Látið mig vita. Bæó, -Egill-

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home