Ok
Ok kannski var það sem ég skrifaði um non places svolítið klaufalega orðað sérstaklega að þetta væru staðir sem skildu ekkert eftir sig. Það er eiginlega rangt og ekki það sem herra Augé er að meina. Því að þessir staðir eru orðnir hluti af hversdagslegri reynsu fólks í vesturheiminum í dag og það fer líka eftir persónunni hvernig hún upplifir staðinn. En þetta eru samt staðir sem eru í menningarlegu sambandsleysi og hafa litla eða enga sögu. Flugvellir, lestarstöðvar, hótelkeðjur osv eru eins allsstaðar í heiminum. Fólk getur ferðast í dag án þess að þurfa að upplifa menningu landsins sem það er í. Samskipti gegnum t.d. tölvuskjái koma í staðin fyrir venjuleg samskipti með líkama og tungumáli. T.d. í Hagkaup sem er dæmi um non place er fólk oftast hljóðlátt, skoðandi verðmiða og svoleiðis. Á flugvöllum og lestarstöðum eru skjáir sem sýna brottfarar og komutíma og tæknilega þarf maður ekki að segja orð.
Jæja nú nenni ég ekki að skrifa meira um þessa helv. non places. Ég vildi bara segja að ég er sammála Braga að fólk getur upplifað þessa staði á mismunandi hátt. Púnkturinn sem ég vildi koma með var að maður getur ekki sagt að þessir staðir hafi sögulegt menningarlegt gildi en þeir eiga samt kannski eftir að hafa það. Þeir er kannski hluti af nýrri tegund af menningu, global menningu?
Allavega þá er ég ekki svo klár í menningarfræðum. Ég átti að skila heimaprófi í dag en náði ekki að klára það og sit hér á nálum að bíða eftir maili frá kennaranum mínum og vona að hann sé bara jákvæður og leyfi mér að skila eftir helgi :/

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home