föstudagur, janúar 30

Hafmingju!

Já til hamingju með afmælin elsgu drengirnir mínir! Þið eruð nú svo vænir piltar. Komiði hérna og ég skal gefa ykkur Werthers Echte súkkulaðihjúpaðar þurrkaðar döðlur með ilmvatnsbragði og fjólubláu molana úr makkinntosj dollunni minni. Og svo á ég karamelluhúðuð epli einhvers staðar oní frysti sem ég skal gefa ykkur þegar þið eruð búnir að mála fyrir mig íbúðina.

Í kveld ætla ég að spila schtandarda upp úr bók á bar í fimm klukkutíma, og það er sgu enginn gjörningur, heldur fyllzta alvara nokkurra drengja með alvöru metnað og ófullnægða spiliþrá. Sagði ég þráa? Getur þrá orðið þrá? Gnægð orðið nægð? Fylgist með á laugardaginn í þættinum "Sölt tilvist" þar sem tveir rauðhærðir menn með gleraugu spjalla um þessi mál og fleiri þar sem þeir eru staddir á biðstofu tannlæknis. Bráðhnellinn þáttur í leikstjórn Barböru Einars í samvinnu við Vest-Nordiske Dokumentseriestiktingskonsulaten (e).

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home