sunnudagur, janúar 11

spennusaga dagsins

Já góðan daginn og til hamingju með afmælið Dagný, Guðrún Dalía, Ólöf, Steinar Júl, árið 2003 og að sjálfsögðu Bigg Djei öpp in ðö skæ. Sit hér og háma í mig appollolakkrís og er í pásu frá gífurlega strembnum og erfiðum próflestri. Ég taldi mig sjá reyk koma út úr glugga á íbúð á móti skólanum þegar ég var að æfa mig í dag og hélt að annað hvort væri kviknað í íbúðinni eða þá að það væri hreinlega kviknað í. Ég ráðfærði mig við skólabróður í næsta herbergi og við sammæltumst um að best væri að hringja í lögregluna. Ég skoraðist undan að hringja, enda er ég ólöglegur innflytjandi hérna og sá helst fyrir mér að mér yrði vísað úr landi þrátt fyrir tilraun til hetjudáðar og góð sambönd innan frímúrarareglunnar. Skemmst er að minnast þegar Hjölla var vísað úr landi fyrir að hylja á sér vinstra eyrað með einkar lúalegri og bíræfinni höfuðstellingu á passamyndinni sinni. Í stuttu máli þá reyndist reykurinn bara vera einhver þurrkarareykur og skömmu síðar sáum við mann í geislandi rólegu ástandi sitja í gluggakistunni og slappa af. Skólabróðirinn hringdi og afboðaði slökkviliðið og þannig lauk einum mest spennandi parti dagsins. Aðrir síður spennandi hlutar dagsins verða ræddir sérstaklega á heimili mínu fljótlega upp úr fréttum og verður boðið upp á goslaust dæet kók og appollolakkrís.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home