miðvikudagur, janúar 7

Morgan Kane goes to short visit to Finnland

Já takk fyrir Gaurún mín og tak fyrir kortið...hvað verðurðu annars lengi í Stuttgart, kannski spilar múm í Stuttgart í vor og þá gætum við hitzt!

annars er þetta einn dimmasti og drungalegasti dagur sem ég hef upplifað lengi, þetta er eins og að vera staddur inni í lélegri glæpasögu. Fór til tannlæknis, lét deyfa mig og drakk síðan kaffi eftirá og fattaði að það er ekkert allt of sniðugt að vera að láta í sig brennheita vökva með dofið munnhol. Ég hef heldur aldrei farið áður til tannlæknis sem kveður mig með orðunum "heyrðu, magnað". Djöfull á ég hipp tannlækni. Hvað kemur næst? Kaldhæðnar ljósmæður?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home