einn alveg veikur
uumm dúúd...ég sé ekki alveg hvar þetta á að vera...er þetta í Álfheimunum? Mururima? Hvassaleiti? Ég er búinn að vera veikur í tvo daga núna og hef hangið heima hjá mér að gera því sem næst ekki neitt. Sé líka fram á að vera veikur á morgun. Frekar hressandi að vakna drullusár í hálsinum og með beinverki, fara á fætur og fatta síðan að allur dagurinn er framundan. Inni í þessu herbergi. Whúppí. Ég stalst samt út á vídeóleigu áðan og leigði mér Almost Famous. Hún er mjög góð, mjög góð. Magnað að hafa svona atvinnugrúppíur á túr...vinur minn, Sjónvarp, sagði mér ansi góða grúppíusögu í gær. Eftir einhverja Red Hot Chilli Peppers tónleika komu tvær stelpur baksviðs og spurðu um Flea. Hann var farinn, en hvítu nærbuxurnar hans sem hann spilaði gjerne í lágu á stólnum. Stelpurnar stukku á nærbuxurnar og rifust um þær eins og hundur og köttur og loks náði ein stelpan þeim, hélt þeim yfir sér og kreisti úr þeim svitann og drakk. "nú er ég loksins með hluta af honum inni í mér!" sagði hún svo og fór. Þetta er alveg fáránlegt...jæja, nú ætla ég að fara að sofa og vakna ógeðslega hress og ó-veikur. Ó-já.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home