mánudagur, nóvember 24

Er ad reyna ad losna vid mynd úr höfdinu á mér af skrímsli sem ég sá í gaer. Thad var sko madur sem átti bágt á thann hátt ad andlitid á honum var einsog hangandi slátur og dingladi. Thetta var bara örskotsstund sem ég sá thetta, í thvögu á leid uppí straetó.
Thad er hérna saenskur trompetstrákur sem ég gerdi mér vonir um ad hafa sem Eika-stadgengil. Stoppadi hann thess vegna ádan á ganginum og spurdi hvernig honum líkadi og hvort honum thaettu ekki Schwabarnir (thjódflokkurinn hér) ótholandi dónalegir. Ég sagdi ad alltaf thegar ég faeri í einhverjar burókratískar erindagjördir hérna vaeri vidmót fólksins einsog hefdi ég myrt fjölskyldu theirra. Thá spurdi hann: ,,Ha? er fjölskyldan thín dáin?... Var hún myrt?...hvad segirdu?"
Og thad tók hálftíma ad útskýra fyrir honum hvad ég meinti, thví hann neitar ad tala neitt nema thýsku sem hann kann augljóslega ekkert í.
Var med augastad á einum Benna líka, en ádur en ég nádi tali af honum maetti hann í hörbuxum í skólann og gaf ég thá upp vonina um ad finna stadgengla fyrir ykkur hér í Stódgardi, elsku gódu vinirnir mínir med edlilegu andlitin og gódu kímnigáfuna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home