mánudagur, nóvember 24

Ráð við heimþrá og hausbrak

Ég er með ágætis ráð við heimþrá fyrir ykkur sem eru í útlöndum. Ef þið farið inn á vísi.is og klikkið á veður sjáið þið mynd sem tekin er frá Öskjuhlíð yfir hlíðarnar. Þá verð ég yfirleitt ánægð yfir því að vera ekki heima. Stundum samt, sérstaklega ef það er gott veður, fæ ég aðeins meiri heimþrá en þá er bara að hafa myndina uppi í smá tíma og upplifa sig eins og maður sé í Öskjuhlíðinni. Það verður fljótlega svo leiðinlegt í lengdina að ég er bara fegin yfir því að vera ekki heima. Það útskýri ég með því að þegar ég er á Íslandi fer allt fljótlega að verða leiðinlegt í lengdina og eftir aðeins stutt stopp fer útþráin að segja til sín. Ég væri nú samt ekkert á móti því að hafa staðgengla vina hér í Lundi.
Úff! Það brakar í hausnum á mér! Ég er í heimaprófi að skrifa um fyrstu málsgreinina í sænsku lögunum og hvað það getur verið í stjórnarfarinu sem hótar þessari málsgrein. Ég valdi að fjalla um Evrópusambandið þar sem þar er svo mikið hægt að skrifa um. Ég er bara að fatta meira og meira að það er nánast of mikið. EN þetta gengur nú samt bara ágætlega.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home