jájájájá. Í gær var föstudagur (eða "litli þriðjudagur" eins og það er alveg eins hægt að kalla hann í þessari borg tíðra barferða sem hljóma hvor um sig upp á þrjá bjóra, öfugt við Reykjavík, borg fárra barferða sem hljóma hvor um sig upp á tíu) og ég fór heim til Fjólu og glápti ásamt henni og Melkorku á Bowling for Columbine í annað skiptið. Fyndið hvað hún virkar kraftmeiri í bíó en heima í stofu. Ég held að það sé múgæsingarfaktorinn. Allir að sjokkerast saman og svona. Partípartí.
Valdi var að spila í gær í þrjá tíma og var lofað fimmtánþúsundkalli en var síðan svikinn um peninginn og sagt að þetta hefði bara verið prufa. Pungfávitadrasl! Alveg mest slísí trikkið í bókinni...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home