mánudagur, nóvember 17

Törf, maðr...já, mér líst vel á jólasið...en hvað kom fyrir jólahúsið hjá Bjaddna? Fór Bjaddni bara í háskólann og talar ekkert annað en íslensku allan daginn? Enginn skilur neitt?

Benni: ég kann ekki alveg að ráða í þennan draum, en hins vegar stemmir það að ég er búinn að eiga frekar súran og leiðinlegan dag, eyddi öllum deginum í skólanum að æfa mig og átti varla nema einar gáfulegar samræður við manneskju og er núna kominn heim aftur. Mér datt reyndar í hug að taka túristakvöld í Amsterdam með einhverjum hressum og þykjast aldrei hafa verið þar áður og gera eitthvað flippað. En það er bara rigning. Rigning þarf samt ekkert að vera leiðinleg, ég prófaði það áðan að ímynda mér að ég hefði verið fatlaður alla ævi, hefði læknast og fengi núna í fyrsta skipti að hjóla úti í rigningunni og það var nú bara ekki sem verst, jafnvel bara nokkuð ferskt...bíddu samdi ekki einhver lag um þetta? Úff, nú finn ég...ah... óútskýranlega þörf..fyrir að... valhoppa...um...íbúðina... aah!....get... ekki...hætt..að... syngja lög úr... þvottaefnaauglýsingum... hjálpfrhmpp!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home