föstudagur, maí 9

Wúúú! Ég er að blogga! Óekkisens snilld er það að storma hérna um internetið og festa haus sinn í netinu og tjá eina litla tilfinningu í þágu vináttunnar og karma. Wúú! Ég kvaddi síðasta "fimmtudag dauðans" í gær, nú er ég eiginlega búinn í þessum tímum og er því frjáls til að stressa mig yfir prófum eða verkefnaskilum. Einnig hefi ég ákveðið að prumpast yfir til Berlínar að herma eftir Benna og spila á litlum sætum múmtónleikum í gamalli sundlaug með diskókúlu og sjö sekúndna reverbi.

Auk þess mæli ég með því að allir liti kjörseðilinn sinn með vaxlitum og kartöflustimplum. Og kannski hefti eitthvað fallegt blóm á hann.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home