föstudagur, apríl 18

Jóóó!, langt síðan ég hef skrevað hér, tel ég. Næstum tvær vikur æ presjúm. Við Benni, Hildur, Óli Björn, Áki og Maggi Hattur fórum í háalvarlega og vel skipulagða tónleikaferð um Holland og Þýskaland, spiluðum hjá Olav Feckes í Ísland Gallerí í Haag, Bookie Wookie í Amsterdam, einhverjum litlum klúbb í Leipzig og síðan heima hjá Gunna í Berlín. Ég, Óli Björn og Benni vorum The Fucking Crabs og spiluðum pönk. Þetta var mjög gaman, og sérstaklega að tjilla í Berlín...magnað hverfi sem allir hreessu krakkarnir búa í. Síðan fórum við í viðtal og fótóshjút fyrir franskt ferðablað sem var að gera tölublað um Íslenska tónlist (sem er reyndar alveg ótrúlega fyndið, við á einhverju verst auglýsta tónleikaferðalagi jarðsögunnar og spilum næstum því bara fyrir íslendingafélagið á staðnum). Og svo er ein saga um Rúnk sem kom í ljós á mánudaginn sem ég ætla að segja þegar ég kem heim...Jaja. Og síðan er Jonni núna í heimsókn og sefur úr sér þynnkuna í rituðum orðum. Bæyo

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home