Ofboðslega er maður nú flippaður. Ég er hérna hangandi í bullandi óvissu um fyrirkomulag kvöldsins, búinn að troða mig út af lunda-afgöngum og átti eitt vandræðalegasta símtal jarðsögunnar áðan. En í kvöld skal þó gleðin ríkja en ekki svíkja, þetta döbb dæmi í kvöld verður eitthvað mega óvissudöbb, og verður það þó ekki í fyrsta sinn sem hringt er í tónlistargyðjuna svona óforvarandis í kompaníi við Helmus og Davðíð. Og svo er Svasil að spila líka í kvöld (Fela Kuti koverbandið from the year 2000). Svasil verður með trommuheila! Hlakka til að heyra það... Ath. símtal númer tvö í þessu bloggi var myndlíking (altso "andlegt símtal" eða "phone call of the mind") og átti ekkert skylt við símtal númer eitt, nema kannski hugrenningartengsl (sjá innsetningarverk mitt "grænleit hugrenningartengsl eilífðarinnar - tveir speglar og þriðja augað") Jafet minn eini. Húllumhæ og út.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home