miðvikudagur, apríl 30

Ég heitir Eiríku og er nýbúinn að fara í gegnum gamlar sögubækur úr grunnskóla. Rakst ég þar á eina sögu sem fjallar um tvo vini sem fara í eldflaugaferð til plánetunnar jarðar. Tel ég að ég hafi verið undir miklum áhrifum frá Andra Snæ þegar ég skrifaði þessa sögu. Og svo er líka gúdd að vera heima, allir eru næs við mig og gefa mér bara epli ef ég er svangur og síðan förum við út í brennó og ef einhver verður þreyttur eða meiðir sig þá er einn alltaf svona sjúkraliði og hjálpar honum. Á morgun ætlum við að smíða kassabíl sem gengur fyrir "ég elska þig" setningum og gleðiskrækjum. Gleðiskrækjur eru sérstök rækjutegund sem syndir hvert vor í sérstökum gleðiskrækjutorfum til Austfjarða. Þær eru mjög háværar, en jafnframt glaðlegar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home