miðvikudagur, apríl 23

Ég fór áðan og keypti mér melodicu. Ég er pínulítið hræddur við að dúlluvírusinn sé kominn inn í gegnum aðra nasaholuna... En ég ætla samt ekkert að gera neitt dúlló með henni sko...Ég ætla að fikta í henni í döbbdæminu með Valda og Sigtryggi (ótrúlega töff og erfitt og karlmannlegt og ekkert einlægt eða neitt þannig!). Hún er samt ýkt kúl, hún er svona appelsínugul að ofan og blá að neðan og kemur í sams konar vínyltösku. Gebbað kúl. Hvað? Hvað?

Annars er ekkert að því að vera dúlla. Margir af mínum bestu vinum eru dúllur. Til dæmis Bragi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home