Það var þrumuveður í nótt og ég rumskaði við drunurnar. Síðan fann ég ljósglampa á augnlokunum og í gegnum svefninn fattaði ég að það var auðvitað þrumuveður. JÁ, SVONA ER MAÐUR NÚ SKYNUGUR ORÐINN HÉRNA! Ég er farinn að verða frekar óþolinmóður að klára prófin, mig langar í sumarfrí...ég nenni ekki að hugsa um skólann í bili. Þarf bara að klára nokkur hljómfræðiverkefni og læra nokkur lög og svo hoppa í prófin og vona það laaangflottasta. Var annars á æfingu á föstudaginn. Einn gaurinn í útsetningadeildinni, Vladimir með síða hárið í tagli, hafði samið lag. Það hét "Power Of Perception". Ég held nú að mínum hafi aldeilis dottið í hug ákveðin klofnun skynjunar þegar ég sá nóturnar...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home