Ú béjbí, jaeou. Benni, ég er nýkominn af Febo þar sem ég fékk mér feitan kipburger í tilefni af nýafstöðnu píanóprófi. Einkunn: 7,5. Ég sko æfði mig sko ekkert sérstaklega mikið, annars hefði ég alveg fengið hærra...sko alveg miklu miklu hærra...ég meina, ef ég myndi æfa mig myndi ég örugglega jafna út Keith Jarrett í píanóeinvígi, eða jafnvel sigra hann, og þá færi hann eitthvað grátandi út í horn og þá myndi ég segja eitthvað, "heei aumingji, afhverju ferðu ekki að æfa þig" og kýla hann í barkakýlið alveg geðveikt snöggt, eða þykjast ætla að vera eitthvað vinur hans og taka í höndina á honum og síðan skalla hann alveg geðveikt fast. Og svo myndi ég hlæja hátt og snjallt og rúlla gjörðinni minni áfram niður götuna, íklæddur stuttbuxum og með sleikjó. (bíddu hvað var ég aftur að tala um?) Nú sit ég hér heima í stofu að Tweede Atjehstraat og hyggst halda áfram hljómfræðaverkefnahausverknum sem ég þarf að skila á mánudaginn. Gúdd bless

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home