Ég er að spá í því hvort að kennarinn minn hafi verið íðí í tímanum mínum áðan. Hann var eitthvað meira lost og mjúkur en venjulega. Eða kannski var hann bara bugaður, hann var búinn að sitja þarna í stofunni í fjóra tíma og enginn kom í tíma til hans (einn hringdi af sennilegast fimm nemendum). Ég myndi vera nett svekktur ef ég væri dissaður svona. Hann reyndi samt að vera með hollenskt umburðarlyndi gagnvart "þeirra námi", en það dugði skammt. Allavega, ég komst að því að hann vissi ekki hvað jóníski skalinn var (sem er alveg ótrúlega beisikk hlutur), og síðan komst ég að því að hann væri með absolút heyrn (ég komst hins vegar ekki að því hvort hann væri með absolút vodka einhvers staðar þarna á bak við). Mjög skrýtinn tími, sum sé. Síðan fór ég líka í gönguferð með tveimur bandarískum trompetleikurum sem voru að fá sér síðdegisjónuna sína. Mjög áhugaverð gönguferð. Kvót dagsins: "aw man, there comes two pieces of some delicious chow, man" ("hó, manni, hér koma tvær lystugar yngismeyjar") Jæja. Einhver blogga meira núna.
ps. Kudos til Svessa dj heimsóknar. Við spörkuðum í rass!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home