sunnudagur, apríl 22

Jaa héddna hér. Tögnin heldur áfram og ég læt eins og ekkert sé. À föstudaginn var afmæli hjá honum drengnum Jens, en ég gaf honum kattadagatal. Sídar í partyinu átti ég í samrædum vid stúlku sem vildi fá ad vita af hverju tad var fyndid og kaldhædid ad gefa kattadagatal...svíar eru sérstök sort. Afmælid var í lengri kantinum, en tad endadi um áttaleytid morguninn eftir, og hafdi ég tá dvalist í sama húsinu undir formerkjum afmælisgests í um tólf tíma. Àfengisneysla var tó í hófi og samkvæmt evrópustödlum og kristnum gildum.

Ì gærkvöldi fór ég á Pusterviks Baren ad kíkja á gang mála. Tar voru tvö bönd, eitt Ska-band og eitt country band. Kántríbandid var geedveikt skemmtilegt og ótrúlega "real". Tetta voru allt frekar ungir krakkar sem voru bara uppi á svidi ad drekka bjór og reykja tóbak og syngja kántrílög. Gedveik stemning í salnum og einn áhorfandinn fann sig knúinn til ad fara ítrekad upp á svid og kyssa hljómsveitarmedlimi. Ì einni atrennunni fór hann úr ad ofan (og nedan) og stagedive-adi nidur af svidinu. Tad var skemmtilegt nokk. Bandid heitir JimBob Conway, og segist Benni kannast vid nafnid. Bandid skartadi svölustu bakraddasöngkonum sem ég hef séd, tvær stelpur á leidinni ad verda tybbnar, tannlausar kerlingar sem hlæja digurbarkalega úti á verönd í Sudurríkjunum. Tess ber tó ad geta ad tær voru enn úngar og spengílegar og tóttu bera af í fegurd og fákmennsku.

Tegar ég kom inn á stadinn borgadi ég mig inn. Ì sömu mund kom poppstjarnan Håkan Hellström inn og var nákvæmlega eins og í sjónvarpinu tegar hann kastadi misheppnadri kvedju á midasölukonuna sem tók ekki eftir honum og hélt áfram ad tala vid dyravördinn. Egill! Tú veist hvad ég meina! Känn ingen sorg för mig, Göteborg!! Jaaaa! Sídan tegar vid fórum út eftir tónleikana sáum vid gamalt stofuorgel sem stód fyrir utan dótabúd. Håkan Wirenstrand, félagi minn og módir, tók vidbragd og hóf orgelleik, og fyrr en vardi var kominn hópur fólks í kringum oss og söng sænsk tjódlög, Cornelis Vrjeesvik, Bellman og Europe. Sameinad í söng og drykkju sá fólkid ad vid erum öll brædur og systur, og upp úr tví voru stofnud samtök söngelsks fólks. Poppfrædingum kemur saman um ad hérna hafi verid stofnud fyrsta hljómsveit Svítjódar.

Èg á enn eftir ad minnast á feminíska sellóleikarann sem er í samtökum gegn megrun og ætlar ad tattúera D-S-C-H á hnúana á sér (DSCH er signatúrmelódía Sjostakóvitjs sem hann notadi út um allt í verkunum sínum, komid frá D-imitri S-C-H-ostakovich, S verdur ad Eb af tví ad tad hljómadi eins á tysku). Èg verd ad vidurkenna ad tetta er ekki neitt rosalega gód hugmynd. Svona álíka og ad vera med Bruce Springsteen tattú á nefinu, nema bara meira arty. En hver veit, kannski tjáir tetta persónuleika hennar betur en nokkud annad? Hver á ad banna henni ad gera tetta? Módir hennar? Módir mín?

Èg er sennilega búinn ad skrifa allt of mikid núna. Vill einhver annar skrifa? Plís?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home