þriðjudagur, apríl 10

Tad hlytur ad vera ömurlegasta starf í heimi ad vera sjónvarpseftirlitsmadur. Hvernig er mögulega hægt ad bera virdingu fyrir starfi sínu tegar madur veit ad tetta er svo mikil smámunasemi og ótarfa pot? Enntá verra hlytur ad vera sjónvarpseftirlitsmadur hjá Sænska Ríkinu. Verra en ad vinna hjá Volvo. Verra en ad vera stödumælavördur. Verra en ad vera midaeftirlitsmadur hjá sporvögnunum. Ætli teir séu í einkennisbúningum tegar teir banka á dyrnar? Samt er ég fylgjandi RÙV...hvada hræsni er tetta í mér...hver er ég eiginlega? Afhverju? Hví?

À leid minni í skólann mætti ég tremur stelpum á götuhorni sem voru ad selja smákökur. À skiltinu stód "2 smákökur fyrir 10 krónur (85 kall)". Tetta tótti mér kostabod og keypti tvö stykki, sennilega af tví ad tad var gott vedur og vor í lofti. Módir teirra stód álengdar og sagdi mér ad tetta væri teirra eigin uppskrift. Ì stuttu máli voru kökurnar afskaplega gúmkenndar og seigar. Einnig tóttist ég finna keim af saffran, en tad verd ég víst ad eiga vid sjálfan mig. Tetta voru sem sagt frekar vondar kökur, en tær glöddu mig sálfrædilega sjáidi til. Og hlæjandi henti ég teim í ruslid og flautadi lagstúf, sennilegast eitthvad lag vid ljód Davíds Stefánssonar. Sídar í dag mun ég kaupa kufl, skerda hár mitt og gerast hinn hlæjandi búdda og dreifa blómum í verslandamidstödum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home