mánudagur, apríl 9

Hmm ég er vaðandi í íbúðum. Það er bara að velja. Það á ekki eftir að vera neitt mál að finna íbúð sem er nógu stór til að allir á íslandi komist ekki fyrir í henni.
Eirikur og jafnvel allir aðrir íslendingar sem búa í svíþjóð! Hafið þið prufað að skrifa á sænskt lyklaborð eins og það væri í slenskt. Það er soldið eins og maður kynni Finsku. jäa -aå er äeg fäint äi helväitäi. = Já það er ég fínnt í helvíti. Kannski er Finska bara það; Íslenska skrifuð á Sænskt lyklaborð. Verð að tékka á þessu nánar. Tók annars leigubíl í skólan í dag. Það er eins og öll praktísk atriði í lífi mínu séu að fara til fjandans, þó að kenningarlega (e. theoreticaly) sé allt frábært. En tölvan er biluð, ég vakna alltof seint alltaf, á oftast ekki pening í strætó á morgnanna og lendi í algeru veseni(var með kort en það rann út 04/06), ljósin kveikna aldrei á klosettunum í skólanum og allur matur sem ég borða stendur í mér. Það kom meira að segja maður frá ríkinu um daginn til að tékka á því hvort ég væri með sjónvarp og væri búinn að borga afnotagjöldin. Helvítis PRAKTÍSKA líf sem í kenningunni er yndislegt.

ps. Það er til lag eftir sænskan mann sem heitir Håkan Hellström: "Känn ingen sorg för mig Göteborg" soldið skemmtilegt. Eiríkur og aðrir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home