Tví meira sem ég hlusta á James Brown, tví meira sannfærist ég um ad Àrni Vilhjálmsson er Gudfadir íslenska soulsins.
Èg er kominn í hljónst sem heitir Supertight (eda Soopatight, eins og ég hefdi kosid tad...jafnvel SupaTite...?) og hún spilar á diskó/70's balli í skólanum tarnæsta föstudag. Mikid diskó, en líka 90's úthverfahaus ad hætti Brand New Heavies. Sídan eru líka tvö lög eftir sænskt fönkband sem heitir Happy Alright, tau eru gedveikt skemmtileg. Happy Alright er einhvern veginn tyndi hlekkurinn á milli Funkmaster og Jagúar. Lallalalla. Sídan fæ ég líka ad bæta vid áhersluordum í rappi. Setningar eins og "number ONE DEE JAY" og "complexities" streyma úr munni mínum á strategískum stödum í laginu.
Sídan klippti ég mig í gær í fyrsta skipti sídan í desember. Vænghaf mitt var ordid sjálfum mér til trafala allar götur sídan ég byrjadi ad turfa ad skáskjóta mér inn um dyragættir. Ad vanda gætti ég tess ad velja slöppustu rakarastofuna...úúppss...fertugar fráskildar mædur í lagningu fyrir sukkferdina til Grikklands med vinkonunum...jæja...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home