laugardagur, mars 6

Vöfflur

Ég á ennþá þættina en þeir eru á svona formati þannig að það er bara hægt að horfa á þá í tölvunni. Ég get samt alveg komið með þá. Bara minna mig á það.
Bragi! Ég mundi gefa fyrir svona 2-3000 krónur. Kannski vöfflujárn? Ég var einmitt að kaupa mér vöffljárn og skil ekki hvernig ég hef komist af án þess í svona langan tíma. Bakaði einmitt vöfflur í nótt þegar ég kom heim frá hverfispöbbnum þar sem ég spilaði pool og var frekar léleg. Ég spilaði líka körfubolta á leiðinni heim og varð valdur að því að vinkona mín datt á hausinn. Ég þoli ekki þegar maður óvart skaðar einhvern í íþróttum. Semsagt vöfflujárn eða körfubolta kannski!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home