Vei! ég lenti í öðru sæti í Artí2004! Brilli snilli. Hverfið mitt er að fara að verða hipp. Í enda götunnar er fólk að setja upp einhvers konar búð sem hefur yfirskriftina "center for urban living" eða eitthvað álíka. Hver veit, kannski get ég fengið mér frappuchino og hanakamb og gengið um í sandölum og kvartbuxum innan skamms. East side rúlar. I am Cool. Mig langar að búa til trilógíu af lögum sem heita "Cool", "Death" og "Fuck" og gefa þau út á smáskífu. Ég myndi allavega kaupa hana. Rölta út í næstu litlu plötubúð á sandölunum mínum með frappuchinoið mitt.
Gussa mín! Múm spilar í Berlín 24. maí. En við spilum á slatta fleiri stöðum í Þýskalandi, þannig að þú skalt tékka á prógramminu ef það er eitthvað sem er nær þér. Farðu á www.noisedfisk.com/mumweb og svo "live". Símanúmerið mitt er +31 642 1010 53.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home