Ég er hér! Allt ágætt að frétta. Ég er bara í svona átaki þannig að ég er ekkert sérstaklega skemmtileg núna. Tala ekki um neitt annað en hvað ég er búin að vera dugleg að hreyfa mig, fara snemma að sofa og læra.
Ég sá Bros Mónu Lísu með Júlíu Róberts í gær. Myndin var ágæt en Júlía ekkert sérstök frekar en venjulega. Ég náði meira að segja að kreista fram nokkur tár þarna í endann. Annars er ég búin að fá nóg af sjónvarpsglápi og var svona hálf að vona að einhver myndi hringja en ég nennti ekki sjálf að hringja í neinn.
Núna er ég að fara á fyrirlestur með lélegasta kennara í heimi. Hún heldur alltaf á bókinni allann tímann og næstum því les bara beint upp úr henni. Frekar glatað. Ég gæti alveg eins bara verið heima og lesið bókina sjálf.
Núna þegar ég klikka á post and publish munu þessi skilaboð verða hluti af internet flæðinu, netverkinu sem tröllríður heiminum í rassgat og "smitar" öll stjórnkerfi og stofnanir í að minnsta kosti hinum vestræna heimi. Tækniþróunin og hnattvæðingin hefur einnig þau áhrif að félagslegt misrétti og polarisering hefur aukist í heiminum.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home