þriðjudagur, mars 9

HAha góður punktur! Ég fór í mótmælagöngu í gær. Það voru frekar fáir og þetta var hálf kraftlaust en samt gaman að læra sænsk slagorð eins og t.d. "Nej till lön efter kön!" og "Vad ska vi göra?-krossa sexismen! när-nu, när-nu, närnärnär-nununu(með skánskum díalekt)" Jamm! Síðan fór ég og smakkaði súshí í fyrsta skipti og það var gott og síðan fór ég og drakk rauðvín til kl 1. Ég er í dag örlítið þunn en glöð. Óska öllum konum hér góðs gengis. Jæja best að fara og læra um pólitíska flóttamenn og konur frá Ungverjalandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home