föstudagur, ágúst 31

Blezzaður Eiríkur og allir hinir Bennarnir. Það var gaman að fylgjast með þessu síðasta bloggi. Sérlega ágætlega vel þjálfaður blogg. Er þetta einhver sérstök breed. Það er bara að óska höfundinum til hamingju með að allt hafi gengið upp og fyrir að hafa verið sá fyrsti sem hefur skrifað meira en fimm línur síðan í maí. Í sumar hafa verið háðar kaffihúsaumræður um réttmæti þessa bloggs og framtíð hans. Nú legg ég til að þessar umræður verði færðar upp á yfirborð sannleikans og að allir taki sér afstöðu eftir sínu höfði. Ég persónulega er PRÓ-Bloggmaður enda bloggið eitt af mikilvægustu fjarskiptatólum mínum í samband við heilagan anda heima á Íslandi. Það hafa einnig heyrst háværar raddir á heimili mínu um að Admin þurfi að skapa sér aðgang fyrir eina Dagnýju Skúladóttur. Annars er þetta há pólítiskt mál og ef ekkert gerist mun ég neiðast til að gefa kost á mér. Og hana nú!

Peace out to all my Ice Homies

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home