Aha. Einungis þarf að emilera undirrituðum rafpaustfang téðrar Dagnýjar Skúladóttur og henni mun ljáð eyra, auga og aðgangur í póstmetafysiskum skilningi. Annars er föstudagur runninn upp, bjartur og fagur og ég er búinn í vinnunni. Altso hættur í vinnunni. Þetta er minn eigin föstudagur, hannaður til að mæta ströngustu kröfum föstudagsnotenda. Þetta er föstudagur í sérflokki. Föstudagur sem tjáir persónuleika minn og sýnir fágaðan smekk minn án þess þó að glata sérkennum sínum sem Verk Guðs. Adios, jibbíkayjei og faaaaashani.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home