föstudagur, apríl 6

Dagný Fór til Thýskalands í morgun ad hitta GD og Àstrrrrrrrrr. Ekkert frekar um thad ad segja en ad hún gleymdi passanum sínum eda réttara sagt hún fann hann ekki. Ekki veit ég hvort thurfi passa til ad fara til Thýskalands frá Danmørku med lest en vid vorum bædi soldid stressud. Thegar hún var farin fór ég ad leita á theim eina stad sem var eftir ad leita á og fann helvítis passan. Riddaramennskan blossadi upp í mér og ég hringdi á leigara og thaut nidur á stød í Lundi en sá ad ég hafdi misst af henni. En hún vard ad fá passan og ég hélt áfram til malmø med næstu lest. Mér til mikillar gremju fann ég ekki Dagnýju á stødinni thar en dró thá ályktun ad hún væri á leidinni til Kaupmannahafnar med lestinni sem ég sá fara út um gluggan á lestinni sem ég kom med. Hédan var ekki aftur snúid og ég keypti mida til Køben. Vel Kominn yfir eyrarsund og til Hafnar thaut ég eins og eldur logandi inn á Hobangården og leitadi í aungtheytingi eftir vesalings passalausu stelpunni og fann hana. Hún var í símanum ad hringja í mig og var frekar pirrud yfir thví ad ég svaradi ekki.
Eftir ad hafa vinkad bless til Dagnýjar stód ég einn eftir á Hovbangårdn kælukkan sjø ad morgni. Nú sit ég á Internet kaffihúsi á Isdegade.
Bæ Egill.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home