miðvikudagur, maí 17

Gleði!

Gleði, gleði! Við erum búin að finna bílinn. Hann er grár Toyota corolla og fínn. Við vonum bara að hann bili ekki á fyrsta degi og flytji okkur þangað sem við viljum án vandræða.

Fleira skemmtilegt: Júróvision á morgun eins og flestir vita. Það verður gaman að sjá hvernig Silvíu vegnar. Ég vona að ég geti losað mig við aulahrollinn og fylgst með þegar hún flytur lagið:) Anna vinkona kemur líka til landsins á morgun. Það er gott veður og sumarið er komið. Systir mín var að klára prófin og er orðin stúdent, til hamingju!

Pís out

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home