miðvikudagur, febrúar 8

Til hamingju með afmælin allir saman. Ég er á Íslandi á Bjargarstíg 6 að skrifa ritgerð. Það hefur hingað til ekki gengið vel en ég sé fram á bjartari tíma. Er lífið ekki dásamlegt?! Það er sól úti og kalt og ég er að gæða mér á kaffi og kóki. Þetta kombó (þó ekki blandað saman) kemur gleðilega á óvart. Kók er gott. Kaffi er gott og ég er ekki frá því að ég sé að hressast. Það örlar reyndar fyrir mótmælum í maga en ég læt mig hafa það.

Ég tók þátt í gallup könnun í gær. Átti í samræðum við fólk um útvarp í eina klukkustund. Fékk 5000 krónur í Smáralindinni fyrir. Ágætt tímakaup. Það sem kom mér á óvart var að fólk virtist hafa fullt að segja um útvarpið og það sem kom mér enn meira á óvart var að ég hafði það líka! Ætli ég hafi í alvörunni einhverjar skoðanir á útvarpi eða var ég bara að þykjast til að geta tekið þátt í samræðunum? Pæling.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home