Ég get bara ekki slitid mig frá tölvunni thrátt fyrir ad vera alveg ad pissa á mig sídan fyrir klukkutíma. Fór á András Schiff tónleika í gaer, hann spiladi fimm Beethovensónötur takk fyrir takk halli og laddi. Ég vard fyrir töluverdum vonbrigdum. Ekki var thó neitt út á fullkomleika hans ad setja, eiginlega var allt OF fullkomid og rosalega thokkafullt og veikbyggt. Fyrst var ég alveg heillud, en í thridju sónötunni voru farnir ad svífa mér fyrir hugskotssjónum afhöggnir hausar og fládir kettir og á einum tímapunkti hugsadi med mér ad ad ef hann gerdi enn eitt helv. diminúendóid yrdi ég ad yfirgefa svaedid. Thad er fallegt ad spila tónlist af tholinmaedi en fyrr má nú pjatlast en algjörlega lyppast. Hann var skárri eftir hlé og sem aukalag tók hann Haydn sónötu í gmoll og thad var frábaert hjá honum. Miklu meiri tónn og dýnamík. Mikid finnst mér samt gaman ad finna hvad ég verd alltaf naemari fyrir tónlist. Núna hlusta ég til daemis á píanódiska sem mér fannst ótrúlega magnadir fyrir nokkrum árum og hef fullt út á thá ad setja.
Spila á samspili á laugardaginn, prelogfúgu, Mozartsónötu og Chopin noktúrnu og svo er ég komin í FRÍÍíííííí!!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home