Til hamingju med afmaelid í gor, elsku Strída mín! Hössladirdu útá thad ad eiga afmaeli?
Vid vorum á thorrablóti í fyrradag med 100 ödrum Íslendingum. Tóti kvad minni kvenna og Land og Synir spiludu Hey Dude og Fiskinn minn. Thad var rosa stud, Tóti segir ad ég hafi dansad einsog töfralaeknir ad reyna komast í trans og nú thegar ég lít til baka sé ég ad thad er rétt og skammast mín. Okkur til mikillar furdu, en gledi maetti Thjódverji sem heitir Klaus og er vinur Dísu sem var í heimsókn um daginn. Vid hittum hann bara thetta eina skipti og eftir nokkra bjóra skipudum vid honum ad maeta á thorrablótid. Og thegar vid komum thangad var hann maettur med vin sinn. Klaus fíladi thorramatinn alveg í taetlur, fékk sér thrisvar á diskinn og dýfdi ánaegdur hákarlsbitum í graflaxsósuna og skóf upp síldarvökva med hardfiski. Sídan dansadi hann til 3 um nóttina sem er ótrúlegt af Thjódverja. Vinur hans var ekki alveg jafn sáttur, honum fannst maturinn óged og fór í svo mikla fýlu thegar hann vann ekki í happdraettinu ad hann brenndi midana sína á kertinu.(hann er sko meira en fertugur). Sídan hitti ég bródur Níelsar sem býr í Stuttgart og hann var svo ótrúlega gladur ad hitta loksins Íslendinga ad hann thakkadi mér 20 sinnum fyrir ad hafa látid sig vita af thorrablótinu. Algjör krúsí. Talandi um krúsí, thá sá ég ad Emilíana Torríní fékk 3 stjörnur í einhverju bladi og thad er umfjöllun um hana útum allt hérna! Frábaert hjá henni. Nú er ég ad fara ad fá mér Döner med Annelie.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home