Ég var ad lenda í smá Twilight Zone mómenti rétt ádan. Thannig var ad í gaer fann ég GSM síma (3. á aefinni sem ég finn). Ég hringdi í sídasta númer og maeldi mér mót vid kaerasta eigandans. Hann var mjög ánaegdur yfir thví ad fá símann aftur og vildi endilega gefa mér 100 kall (1000 Isk) í fundarlaun. Ég sagdi honum ad thess vaeri alger ótharfi og ad madur fengi bara svona lagad tilbaka á einhvern annan hátt. Thetta var semsagt í gaer. Svo rétt ádan fattadi ég ad ég hafdi týnt mínum egin síma og fékk smá panik hérna í tölvusalnum í skólanum (akkúrat á theim stad thar sem ég fann síman í gaer). Thid vitid svona: Fokk fokk fokk - hroll. Ég reyndi ad paela í thví hvar ég hafdi getad lagt hann frá mér og fór ad leita en síminn fannst ekki. Svo datt mér í hug ad einhver hafi getad skilad honum inná bókasafn, og viti menn! Thad hafdi einhver skilad símanum. Meira ad segja hringt í sídasta númer til ad láta vita. Segid svo aldrei framar ad thad sé ekki eitthvad svona force/karma/örlaga sjitt i gangi. Aldrei framar!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home