Ég fór á eina allrabestu tónleika lífs míns í gaer! Jordi Saval (gömbuleikari, í Öllum heimsins morgnum) var med sólótónleika og spiladi í tvo tíma og tók svo fjögur aukalög. Hann var ótrúlegur!!! Vid Yun-Zi vorum grátbólgnar thegar vid komum út og fórum svo og fengum okkur bjór og andvörpudum bara milli sopa.
Nú man ég afhverju ég er í tónlistarnámi. Var eiginlega búin ad gleyma thví.
Var núna ad koma úr thriggja tíma rhythmik-sessjón, thad er nú alveg haegt ad fá nóg af thessu...
Er ad verda algjör. Í gaer byrjadi ég ofaná alltsaman í Tai- Chi. Thad er samt gedveikt. Kennarinn er kínversk kona sem er svo full af orku ad hún getur varla talad. Thad kom bara stöku sinni frá henni stuna sem sagdi ,,anda inn" eda ,,anda út" eda ,,safna chi" og hún var med fullnaegingarsvip á medan og leiftradi af henni.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home