þriðjudagur, apríl 13

Ég sit í Árbænum í Dísarás og læri (eða þykist læra). Ég er núna búin að taka 3 viðtöl og ef allt fer vel tek ég síðasta á morgun. Þetta er búið að ganga þokkalega en ég á erfitt með að sitjast niður og skrifa út viðtölin. Það er svo helv.. leiðinlegt nebblega. Ég hef líka áhyggjur af síðasta viðtali en það var hópviðtal og konurnar töluðu frekar lágt. EN það reddast. Það er búið að vera ágætt hérna á Íslandi. Kl er núna 13:01 og það er búið að rigna snjóa og núna er sól. Allt síðan ég vaknaði kl 10:00. Gaman að því. Ég er síðan búin að redda mér vinnu í sumar á sama stað og í fyrra og er bara að fara að skrifa undir núna á eftir. bæbæ

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home