miðvikudagur, mars 31

Gúggilúggilú! ...Minn kann á thad! Afsakid plássfrekjuna hér á blogdinu, verd bara ad segja ykkur frá skapstóru ömmu minni. Thannig er mál med vexti ad mamma og amma voru á leidinni í briddsskólann kvöld eitt fyrir stuttu einhverstadar uppí Sídumúla. Thad var eitthvad verid ad gera vid briddsskólahúsid svo erfitt var ad fá staedi fyrir utan. Maedgurnar komu thá auga á laust staedi á planinu vid hlidina og lögdu thar, en thetta var thá beint fyrir utan ísbúd Herberts Gudmundssonar, og thegar hann sá ad thaer aetludu ad leggja fyrir utan búdina sína hljóp hann alveg rasandi út og galadi á thaer: ,,Viljid thid gjöra svo vel ad faera bílinn á stundinni! Sjáidi ekki ad ég er med business hérna?!!!!!" Maedgurnar sýndu ekki strax á sér fararsnid og vard nú heljarinnar senna á milli theirra thriggja, thó sérstaklega ömmu minnar og Hebba. Amma mín er ekki vön ad láta stinga uppí sig nefnilega og nú var engin undantekning, á endanum vard hún svo aest ad hún öskradi á Herbert: ,,ÉTTU BARA SKÌT!" En svo endadi reyndar med thví ad thaer thurftu ad faera bílinn, en amma var fúlust yfir thví ad geta ekki farid framar í ísbúdina, thetta var uppáhaldsísbúdin hennar nefnilega.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home