fimmtudagur, apríl 29

Egill er hundur

Jæja, bara allt dautt. Héðan er það að frétta að Filip og Emelie okkar góðu nágrannar voru að flytja í dag. Þau fluttu reyndar ekkert langt eða rétt fyrir ofan Foodman. Við hjálpuðum þeim að sjálfsögðu og fengum pastasalat fyrir (og lof um hjálp þegar við flytjum). Þetta eru rosa fínar íbúðir og ég væri alveg til í að flytja í eina svona sjálf en Egill vill ekki sjá það að flytja. Hmm, þá flyt ég kannski bara sjálf (og hann kemur á eftir með lafandi tungu).
Það er erfitt að einbeita sér að ritgerðarskrifum, allt of mikið djamm, en ég hef valið ritgerðina þessa helgina.
Vonandi hef ég bloggað ísinn með þessum skrifum. Adjö og til hamingju Bragi

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home