bara svona kíkja
Ágæt helgi að baki...horrorpartí á föstudag (ég var gaurinn í Clockwork Orange með eitt málað auga...verí skerí) og fór á alveg ææææææðislega skemmtilega tónleika með uuuuppáhalds hljómsveitinni minni, Super Furry Animals á laugardaginn, og paaty eftirá. Mér fannst þeir fremur þurrir og leiðinlegir. Enda virðist þetta fremur þurrt band. Er annars að reyna að berja saman pistil um lífið í Amsterdam fyrir hana Ingu Rún on ðe mogg. Var að fatta að ég er að setja fram pælingu í fyrstu málsgrein og enda síðan á því að rökstyðja allt aðra pælingu í lokin. Frábær penni. En það skiptir kannski ekki máli, þetta er svo mikið popp að það nennir enginn að pæla í því. Kallið mig bara Britney Spears Morgunblaðsins. Fólk eins og Benni, Auður og Bragi mega því búast við gífurlega katsjí pistli á föstudaginn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home