Fór í óperu á kvöldid fös, hún hét Norma og er eftir Bellini. Finnst ykkur ekki magnad ad vid fáum frímida i óperuna í skólanum? Adalsöngkonan (Norma) söng naestum allan tímann og var frábaer. Svo var líka rosalegur tenor sem lék manninn hennar, hann leit út einsog Elvis og söng einhverja brjálada aríu medan hann tipladi á örmjórri jafnvaegisslá sem sveifladist til og frá. Já já já. Og ég hef aldrei ádur heyrt vinkonudúett í óperu, en tharna var undurfagur dúett vinkvenna sem hétu thví ad vera bestu vinkonur um alla eilífd. Ó hve gudda gladdist thá, hún gleypti loft og svelgdist á, hún er svo gód og segir satt med silkihúfu og pípuhatt.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home