þriðjudagur, júní 10

Hóólare minn Benni kær, sem og aðrir þeir er kunna að lesa þetta blogg, og hana nú. Núna er ég sumsé næstum því búinn í prófum og hefur bara gengið vel, eftir minni bestu vitund. Mér gekk alveg ágætlega í spilaprófinu, fékk góð komment og svona, þannig að það er bara fínt...ég held að gaurinn á undan mér hafi fallið á prófinu og var þar af leiðandi rekinn úr skólanum...ótrúlega heví. Hann er alveg fínn spilari, en hann er mikill hasshaus og búinn að vera í frekar miklu rugli í ár. Yeye. Annars er Hallvarður hérna að heimsækja Valda frænda sinn og hefur sótt með okkur Valda afar artí og hipp tónleika. Artí og hipp, artí og hipp. Ég reyni að redda China shoes. Blómamarkaðurinn, ræt? Til hamingju með mbox, annars!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home