Fór í skólapartí í gær með Hallvarði. Það var ó-svo-fínt. Þjóðverjarnir sem héldu partýið voru búin að útbúa númeruð plastglös, svo allir gætu nú verið með á hreinu hver ætti hvaða glas. Hjeeaaasz. Ótrúlegt. En samt svo praktisch! Quadradisch - Praktisch - Gut! Bollan var soldið á bragðið eins og egils appelsínudjúsþykkni með smá harpixi útí (ég er samt örugglega einn af fáum sem hefur aksjúallí bragðað harpix, en það var í smíðakofanum í Vatnaskógi árið 1991). Naked City er að spila hérna á þriðjudaginn, töff lökk að það sé uppselt. Síðan voru líka Public Enemy að spila í Paradiso síðasta mánudag, ég stoppaði fyrir utan og hlustaði á óminn af Chuck D vera að predika yfir krádið...sjitt..gebbað.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home